Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Wuthering Heights: Í greipum greddunnar

Kolbeinn Rastrick skrifar:Wuthering Heights er fyrsta og eina skáldsaga Emily Brontë en hún var gefin út árið 1847. Verkið hefur öðlast sess sem klassík breskrar bókmenntasögu og hefur getið af sér ótal aðlaganir. Að minnsta kosti 20 kvikmyndaaðlaganir byggja á sögu Brontë og hafa mörg af stórum nöfnum kvikmyndasögunnar spreytt sig á efninu. Þar á meðal eru til dæmis William Wyler, Luis Buñuel, Jacques Rivette og Andrea Arnold. Frásögn bókarinnar snýst um samband Catherine Earnshaw og Heathcliff en þau alast upp saman á sveitasetrinu Wuthering Heights. Í gegnum söguna af þessu sambandi tekur Brontë á stórum þemum eins og stéttaskiptingu, rasisma, eignarhaldi og stöðu kvenna. Nú hefur hin breska Emerald Fennell bæst í hóp þeirra leikstjóra sem hafa ákveðið að gera úr þessu efni kvikmynd. Hú
Wuthering Heights: Í greipum greddunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta