Viðbúnaður í sænska orkugeiranum hefur verið aukinn vegna yfirvofandi ógnar sagði sænska sjónvarpsstöðin TV4 í morgun. Hún sagðist hafa heimildir fyrir því að yfirvofandi væri árás á orkuinnviði allra ríkja á Norðurlöndum. Þetta hafði TV4 eftir heimildum. HORFT TIL ÁRÁSAR Á PÓLLAND Fjölmiðillinn hafði svo eftir Ola Billger hjá hlerunarþjónustu sænska hersins í hádeginu að aukinn viðbúnaður væri ekki vegna sértækrar ógnar. Þess í stað tæki þetta mið af árás á orkukerfi Póllands undir lok síðasta árs sem varð til þess að metin var meiri þörf á vörnum við mikilvæga innviði.Sænska ríkissjónvarpið SVT hefur einnig eftir Billger að engin sérstök hótun beinist að orkuinnviðum landsins. Í seinni tíð hafi þó varnarviðbúnaður við orkuinnviði verið aukinn. Hann segir að á föstudag hafi orkugeirinn