Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vonbrigði á vonbrigði ofan og enn langt til lands

„Maður óttast enn og aftur að það sé lengra til lands, eins og það er búið að vera í fimm ár,“ segir Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur um nýjustu verðbólgumælingu Hagstofunnar.Eftir að verðbólga í nóvember fór niður í 3,7 prósent hefur hverja vonbrigðamælingin á fætur annarri rekið á fjörur þjóðarinnar. Flestir sérfræðingar spáðu því að verðbólgan færi niður fyrir fimm prósent í þetta skiptið og 5,2 prósent er því blaut tuska framan í hagstjórnina.Gjaldskrárhækkunum og breytingum á vörugjöldum á bifreiðar var, réttilega, kennt um verðbólguskotið í janúar. En í þetta skiptið eru hækkanirnar á breiðari grundvelli þótt eitt og annað sé fyrirsjáanlegt. Til að mynda hækkun á fatnaði og heimilistækjum þar sem útsölur eru að líða undir lok og hækkanir á gjaldskrám sveitarfélaga — sorphirðu, vatns
Vonbrigði á vonbrigði ofan og enn langt til lands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta