Kvartað var undan hegðun Helga Jenssonar, lögreglustjórans á Vestfjörðum, á þorrablóti Flateyringa – Stútungi – fyrr í mánuðinum. Dómsmálaráðuneytið hefur málið til skoðunar.Vísir sagði frá því í gær að kvartanirnar hefðu verið tvær, önnur vegna kynferðislegrar áreitni og hin vegna þess að hann hefði ráðist líkamlega að manni á blótinu. KVARTAÐ TIL NEFNDAR UM EFTIRLIT MEÐ LÖGREGLU Samkvæmt kvörtun sem send var Nefnd um eftirlit með lögreglu (NEL), og fréttastofa hefur undir höndum, sýndi Helgi af sér kynferðislega ágengni og vísaði minnst tvívegis til valds embættis síns.Kvörtunin var framsend til dómsmálaráðherra til þóknanlegrar meðferðar sem æðsta yfirmanns lögreglu í vikunni og ráðuneytið staðfestir að málið sé til skoðunar þar.NEL fjallar um meint refsiverð brot, starfsaðferðir og