Trump varði stórum hluta ræðunnar í að ræða efnahagsmál enda eru þau það sem kjósendum vestra finnst skipta langmestu máli, hafa í sig og á og til hnífs og skeiðar. Margir fjölmiðlar hafa farið yfir ræðu Trumps og staðreyndaprófað hana og þar sem margt sem ekki stemmir og mikið af staðreyndavillum um efnahagsmál, verðlag, ástandið á landamærunum og kosningar. Politiken segir í leiðara að Bandaríkjaforseti hefði aldrei logið jafn mikið. Þetta var til umfjöllunar í spjalli Boga Ágústssonar við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. TALAÐI EINGÖNGU TIL STUÐNINGSMANNA Fréttaskýrendur segja margir að Trump hafi verið að reyna að sannfæra eigin kjósendur um að hlutirnir væru á réttri leið og að þeir ættu ekki að snúa baki við Re