Norðanhríðin sem hefur geisað á Vestfjörðum og við Breiðafjörð nær inn á Faxaflóa upp úr hádegi. Þá er viðbúið að skyggni verði mjög lítið á köflum, einkum norðantil, og að akstursskilyrði verði varasöm. Gular viðvaranir eru þegar í gildi á Vestfjörðum og við Breiðafjörð. Gul viðvörun tekur gildi við Faxaflóa klukkan tvö. Hún gildir til sex en hinar tvær til átta í kvöld.Veðurstofan spáir tíu til átján metrum á sekúndu með snjókomu eða skafrenningi á öllum þremur spásvæðunum.Mjög hvasst hefur verið undir Hafnarfjalli og snjóþekja eða hálka er á öllum leiðum á Vesturlandi, þæfingsfærð er á Heydal og á nokkrum leiðum í uppsveitum Borgarfjarðar.Þungfært eða þæfingur er á hluta Ísafjarðardjúps og þæfingur á Dynjandisheiði. Hálka eða snjóþekja er á öðrum leiðum á Vestfjörðum.