Maður sem hellti áfengi ofan í eikarhauk sem er skráður í útrýmingarhættu hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir dýraníð.Maðurinn, sem heitir Cesar Gustavo Diaz, klófesti fuglinn í garði í Los Angeles-sýslu og hellti síðan í hann áfengi beint í gogginn úr grænni áldós, samkvæmt yfirlýsingu frá sjávarútvegs- og náttúruverndarráðuneyti Kaliforníu. Haukurinn er af tegund sem kallast Cooper's Hawk, eða eikarhaukur á íslensku, og er verndaður samkvæmt lögum.Auk fangelsisdómsins er maðurinn á skilorði í eitt ár, má ekki eiga dýr í fimm ár og ekki skotvopn í tíu ár. Þá þarf hann að greiða 220 pund í sekt, gegna samfélagsþjónustu og sækja námskeið í dýravernd.