Það ríkti spenna í hreindýragarðinum í Fellum þegar fósturtalningamaður kom í heimsókn. Fyrstu ástarævintýrin urðu þar í haust og gangi allt að óskum gæti ræst langþráður draumur um fulltamin hreindýr. MIKIÐ GEKK Á Í HAUST Á Vínlandi í Fellum eru tarfarnir Garpur og Mosi og kvígurnar Hreindís og Sólhyrna. Þau eru öll fædd í villtri náttúru og kvígurnar ungar. Í haust var fyrst von til að þær tækju fang og tarfarnir voru svo trylltir að ekki var hægt að koma nálægt þeim. En Björn varð nú samt vitni að rómantíkinni.Við erum náttúrlega spennt að fá að vita hvort við séum að fá kálfa. Það gekk hérna mikið á í haust á fengitímanum og ég á fulla von á að fá kálfa úr allavega annarri kvígunni og ég vil náttúrlega fá úr báðum,“ segir Björn Magnússon, eigandi Hreindýragarðsins.Við erum náttúrleg