Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ölvaður maður reyndi að kyssa fatlaða konu og neitaði að fara

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi mann í gær til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir húsbrot. Hann var sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni.Lögregla var kölluð til í fyrra þegar maðurinn neitaði að yfirgefa íbúð konu sem hann þekkti þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir. Þangað hafði hann komið óboðinn. Samkvæmt ákæru hélt maðurinn utan um konuna og kvaðst vilja kyssa hana. Hún þvertók fyrir það og bað hann að fara. Hið sama gerði starfsfólk í dagþjónustu fyrir fatlaða í húsinu en maðurinn tók ekki rökum. Að lokum var lögregla kölluð til og maðurinn handtekinn. Hann var þá ölvaður, óstöðugur og samhengislaus í tali.Maðurinn var ákærður fyrir kynferðislega áreitni með því að reyna að kyssa konuna gegn vilja hennar. Hann kvaðst ekki muna eftir þessu en sagði þau oft kveðjast
Ölvaður maður reyndi að kyssa fatlaða konu og neitaði að fara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta