Þorsteinn Pétur Guðjónsson snýr ekki aftur í forstjórastólinn hjá Deloitte þrátt fyrir að hafa verið sýknaður af ákæru um kynferðisbrot fyrir viku. Hann og stjórn fyrirtækisins hafa komist að samkomulagi um starfslok forstjórans.Þorsteinn Pétur vék tímabundið úr starfi forstjóra eftir að hann var ákærður fyrir kynferðisbrot, meðan málið var til meðferðar hjá dómstólum. Þá var Signý Magnúsdóttir skipuð forstjóri til bráðabirgða. Nú er ljóst að hún gegnir starfinu lengur, þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.Í tilkynningu frá Deloitte segir stjórn að eftir samtal við Þorstein hafi verið ákveðið að leiðir myndu skilja nú og honum þakkað fyrir hans framlag í gegnum árin. Haft er eftir Þorsteini í sömu tilkynningu að hann hafi staldrað við eftir sýknuna og metið næstu skref. Eftir samtöl vi