Íslenska heilbrigðisfyrirtækið Prescriby hefur hafið starfsemi í Bandaríkjunum og verður þar veitt þjónusta sem þróuð var á Íslandi. Prescriby hjálpar einstaklingum, sem nota sem dæmi sterk verkjalyf eftir skurðaðgerðir eða þeim sem hafa notað lyf til lengri tíma, til að trappa sig niður á lyfjunum undir handleiðslu frá sérfræðingum fyrirtækisins eins og fram kom í spjalli við framkvæmdastjórann Kjartan Þórsson hér í blaðinu 30. október.