„Ég er sundfíkill. Ég kem daglega, stundum tvisvar á dag. Ef ég þarf að ná mér niður þá er það hér,“ segir listakonan Rán Flygenring sem fór eitt sumar vítt og breitt um landið, dýfði sér í hverja laug, hvert lón og náttúrupoll sem hún fann og dró upp mynd af baðmenningu Íslands.Útkoman er bókin Sketching Bathing in Iceland þar sem einstök sýn hennar á sundlaugarmenningu Íslands birtist. Egill Helgason hitti Rán í sundlaug Vesturbæjar.„Mér finnst mjög gaman og gott að synda. Ég fer helst ekki í sturtu heima hjá mér, svo er sauna. Þetta er allur pakkinn og félagslegt. Mér finnst þetta æði.“Rán segir bókina vera ástarbréf til íslenskrar baðmenningar. Bókin er í senn safn teikninga og handbók fyrir ferðamenn og sundlaugargesti.„Þetta eru skissur sem ég gerði fyrir svolitlu síðan. Þá fór ég í