Hætt er við því að akstursskilyrði verði varasöm við Breiðafjörð og á Vestfjörðum í dag vegna norðvestanhríðar. Allhvasst verður með snjókomu og skafrenningi. Skyggni verður því lítið. Gular viðvaranir eru í gildi í þessum landshlutum til klukkan átta í kvöld.Á höfuðborgarsvæðinu hlánar nokkuð framan af degi með suðaustan hvassviðri og rigningu. Snjórinn sem féll í gær er farinn að bráðna en sums staðar hefur hann þjappast og getur þar verið hált. Vindáttin snýst þegar líður á daginn og frystir með snjókomu eða éljum á vestanverðu landinu. Hvassast verður norðantil á landinu.Veðurfræðingur Veðurstofunnar segir að skilin sem fylgja lægð sem kemur inn á Faxaflóa séu ansi skörp og hvetur fólk til að fylgjast vel með fréttum af veðri og færð því breytingarnar geti verið snöggar.Veðurspáin er s