Bandaríkin hafa dregið saman mikinn herafla í Mið-Austurlöndum og Evrópu undanfarna daga, samkvæmt því sem þarlendir fjölmiðlar hafa rakið. Viðbúnaðurinn er sagður sá mesti á svæðinu frá því fyrir innrásina í Írak árið 2003. New York Times, Washington Post og CNN hafa öll lagst yfir gervihnattarmyndir og fluggögn til að átta sig á umfangi heraflans.Liðssafnaðurinn hófst af alvöru eftir að kjarnorkuviðræður Bandaríkjanna og Írans sigldu í strand þann 17. febrúar síðastliðinn. Samkvæmt frétt Washington Post hafa yfir 150 herflugvélar verið fluttar á bækistöðvar nærri Íran á þessum stutta tíma. FORSETINN VEGUR OG METUR VALKOSTINA Donald Trump er sagður hafa ýmsa valkosti, kjósi hann að skipa fyrir um árás. CNN segir ákvörðun Trumps ekki liggja fyrir en hann geti valið allt frá takmörkuðum