Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Demókratar saka Bandaríkjastjórn um yfirhylmingu í Epstein-málinu

Demókratar saka ríkisstjórn Donalds Trumps um mestu yfirhylmingu í sögunni vegna nýrra upplýsinga um óbirt gögn í Epstein-málinu.Ríkisfjölmiðillinn NRP fann glufur í vitnisburði konu frá árinu 2019 sem sakaði Bandaríkjaforseta um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi þegar hún var á aldrinum 13–15 ára. Númerakerfi birtra gagna gefur til kynna að fulltrúar alríkislögreglunnar FBI hafi tekið fjögur viðtöl við konuna sem um ræðir.Aðeins voru birt gögn úr einu viðtali og í því beinast ásakanir hennar einkum að kynferðisafbrotamanninum Jeffrey Epstein. Gögnin úr hinum viðtölunum þremur, samtals um fimmtíu síður, eru ekki á vefsíðu bandaríska dómsmálaráðuneytisins þar sem gögnin í málinu voru birt. Fjölmiðillinn The New York Times og kapalsjónvarpsstöðin MS NOW styðja þessar fullyrðingar NRP.D
Demókratar saka Bandaríkjastjórn um yfirhylmingu í Epstein-málinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta