Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Úkraínskur drónaframleiðandi opnar verksmiðju

Drónaframleiðandinn Ukrspecsystems opnaði í gær drónaverksmiðju í Suffolk á Englandi samkvæmt tilkynningu frá bresku ríkisstjórninni. Fyrirtækið verður með framleiðslu í Mildenhall en flugæfingarsvæði í Elmsett í Suffolk á Englandi.Drónarnir verða framleiddir fyrir úkraínska herinn og nýttir í baráttu hans við rússneska herinn í Úkraínu. Fleiri úkraínsk fyrirtæki í varnarmálum hafa opnað eða eru með áætlanir um að opna fyrirtæki í Danmörku og Þýskalandi.Ekki liggur fyrir hvers kyns drónar verða framleiddir í Englandi en fyrirtækið Ukrspecsystems hefur frá stofnun 2014 framleitt eftirlitsdróna. Breska ríkisstjórnin hefur nú þegar keypt 80 slíka dróna fyrir úkraínska herinn.,,Ný verksmiðja Ukrspecsystems er traustsyfirlýsing á stuðningi Bretlands og undirstrikar aukna samvinnu milli varnarið
Úkraínskur drónaframleiðandi opnar verksmiðju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta