Stjórnvöld í Kanada íhuga nýjar reglugerðir um spjallmenni ef gervigreindarfyrirtækið OpenAI bætir ekki öryggiseftirlit sitt með færslum notenda. Forsvarsmenn OpenAI funduðu með Evan Solomon, ráðherra gervigreindar í Kanada, í gær.Solomon kallaði forsvarsmenn fyrirtækisins til fundar vegna yfirlýsingar fyrirtækisins um að það hefði bannað Chat GPT-reikning Jesse van Rootselaar, sem myrti 8 manns í skotárás í Tumbler Ridge nýverið. Reikningi hennar var lokað í júní en OpenAI gerði lögregluyfirvöldum ekki viðvart vegna vafasamra færslna Rootselaar.Dómsmálaráðherra Kanada, Sean Fraser, fer fram á að OpenAI geri breytingar á öryggiseftirliti sínu og ef fyrirtækið bregðist ekki við þessari beiðni muni ríkisstjórn Kanada setja á reglugerðir til að ná fram breytingum.Í tilkynningu frá OpenAI segi