Fjórir létust og sex særðust þegar kúbverska strandgæslan hóf skothríð í átt að hraðbáti við strendur landsins í dag. Báturinn er skráður í Flórída en ekki hefur verið greint frá þjóðerni farþeganna sem voru um borð.Í tilkynningu frá innanríkisráðuneyti Kúbu segir að báturinn hafi verið stöðvaður þar sem hann var ólöglega innan landhelgi nærri Villa-Clara héraði, austan við Havana.Þar segir jafnframt að skoti hafi verið hleypt úr hraðbátnum að fyrra bragði með þeim afleiðingum að yfirmaður strandgæslunnar særðist. Þá hafi strandgæslan svarað í sömu mynt og hafið skothríð í átt að hraðbátnum.James Uthmeier, dómsmálaráðherra Flórída, segir á samfélagsmiðlum að málið sæti nú rannsókn sem unnin verði í samvinnu við alríkis-og lögregluyfirvöld. Hann segir kúbversk stjórnvöld ekki traustsins ver