Síðan innrás Rússa hófst hafa þeir ráðist markvisst á innviði í Úkraínu og þannig svipt milljónir rafmagni og hita í miklum frosthörkum í landinu. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra greindi frá því í fréttum í gær að auk þess að senda búnaðinn setji Ísland átta hundruð milljónir króna í orkutengda sjóði til styrktar Úkraínu.„Öll þjóðfélög í dag ganga fyrir rafmagni. Bæði líf fólks og þeir innviðir sem eru í viðkomandi þjóðfélagi lamast þegar rafmagnið vantar,“ segir Halldór Halldórsson öryggisstjóri hjá Landsneti.Landsnet, Veitur og Norðurorka útvega sjö gáma af búnaði, og senda út í samstarfi við utanríkisráðuneytið.Sjö gámar af raforkubúnaði frá Landsneti, Veitum og Norðurorku verða sendir til Úkraínu í vikunni. Andvirði búnaðarins er talið hlaupa á tugum milljóna en tengivirki úr Hr