Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þjófur sló starfsmann verslunar í miðbænum

Starfsmaður verslunar í miðbænum varð fyrir líkamsárás í dag þegar þjófur reyndi að stela vörum úr versluninni.Í tilkynningu lögreglu segir að meintur þjófur hafi brugðist illa við þegar upp komst um athæfi hans og hafi hann í kjölfarið slegið starfsmanninn. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.Þá hafði lögregla einnig afskipti af viðskiptavinum verslunar sem reyndu að greiða fyrir kaup sín með fölsuðum seðlum.Auk þessa barst tilkynning um rútu sem farið hafði utan vegar. Rúmlega fimmtíu voru í rútunni en engin slys urðu á fólki.Starfsmaður verslunar í miðbænum varð fyrir líkamsárás þegar upp komst um þjófnað í dag.RÚV / Ragnar Visage
Þjófur sló starfsmann verslunar í miðbænum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta