Tilkynnt var í síðasta mánuði að Falstaff eftir Verdi yrði fyrsta uppsetning nýrrar þjóðaróperu undir hatti Þjóðleikhússins - óperan verður frumsýnd í mars á næsta ári í Hörpu; fjórum árum eftir svanasöng Íslensku óperunnar, Madame butterfly. SAGA AF ÓPERU Spegillinn fjallaði nýverið um átökin að tjaldabaki þegar þjóðaróperunni var komið á fót; listamönnum var umhugað um sjálfstæði hennar og athygli vakti að nýskipaður óperustjóri var yfir og allt um kring þegar lögð voru drög að þessari nýju menningarstofnun.Íslensku óperunni, sem hafði verið flaggskip óperuheimsins hér á landi í nærri hálfa öld, þótti illa að sér vegið og inn í þetta blandaðist ópera sem ekki hefur verið samin og óvíst hvenær verður flutt; óperan um Agnesi Magnúsdóttur sem Daníel Bjarnason átti að semja.Steinunn Birna