Rúta á vegum Reykjavík Excursions sem var á leið til Reykjavíkur lenti utan vegar nærri Litlu kaffistofunni síðdegis í dag. Engum varð meint af og er búið að ferja farþega í borgina. Þetta segir Björn Ragnarsson, forstjóri fyrirtækisins, sem lýsir erfiðum akstursskilyrðum á svæðinu.