Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hitti Donald Tusk pólskan starfsbróður sinn í Varsjá í Póllandi í dag.Kristrún og Tusk funduðu í um klukkustund áður en þau komu fram á blaðamannafundi. Þar var einna helst fjallað um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið.Tusk talaði meðal annars um Pólverja á Íslandi og lýsti því yfir að hann yrði ánægður ef Ísland og Noregur gengju í ESB.Kristrún minntist líka á hinn mikla fjölda Pólverja sem búa á Íslandi og sagði það hafa gengið mjög vel. Uppáhaldskennari dóttur hennar sé til dæmis pólsk.Hún sagði enga ákvörðun enn hafa verið tekna um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan verði haldin, en lagði áherslu á að ef til aðildar kæmi væri lykilatriði að virðing væri boðin fyrir sérkennum allra þjóða. Ísland hafi mik