Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákonar krónprins Noregs, segir að þó að hann eigi í vandræðum með skap sitt hafi hann aldrei beitt nokkurn mann ofbeldi. Hann segir framburð fyrrverandi kærustu sinnar um samband þeirra ekki réttan.Høiby er ákærður fyrir fíkniefnabrot, umferðarlagabrot, líkamsárásir og nauðganir. Høiby er í ákærunni sagður hafa beitt Haukland, sem er einn þekktasti áhrifavaldur Noregs, ofbeldi ýmist heima hjá þeim eða á opinberum stöðum á árunum 2022 og 2023. Vísað er að auki til nokkurra dæma þar sem Høiby reiðist af litlu tilefni og ógnar henni. Nokkrum sinnum var hún tekin hálstaki og minnst einu sinni slegin með krepptum hnefa.Haukland, sem sést hér að neðan yfirgefa réttarsalinn, sagði að samband hennar við Høiby hefði einkennst af rifrildum, ótta og ofbeldi. Hún staðfes