Milljarðamæringurinn Bill Gates hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá fyrrverandi eiginkonu sinni með tveimur rússneskum konum, briddsspilara og kjarneðlisfræðingi. Bað hann starfsfólk sitt afsökunar á tengslum sínum við Jeffrey Epstein en tók þó fram að hann hefði ekki tekið þátt í neinu „ólöglegu“.