„Hér erum við með klassíska Yrsu. Það eru margir þræðir sem virðast algjörlega ótengdir og spennan magnast,“ segir Ingibjörg Iða Auðunardóttir gagnrýnandi Kiljunnar um Syndafall eftir Yrsu Sigurðardóttur.„Þarna erum við með konu sem hlaut nýverið kuðungsígræðslu og fer að heyra sérkennileg hljóð á sama tíma og hún er beðin um að meta innbú manns sem hvarf með dularfullum hætti.“ Þessi söguþráður sögunnar þótti Ingibjörgu mjög grípandi.Næst er sagt frá konu sem hefur lifað í skugga ofbeldis sem hún var beitt fyrir áratugum. Hún telur sig vera að hefna sín á manninum sem braut á henni og fremur glæp. „Hún engist um á þessum blaðsíðum bókarinnar og maður finnur svo til með henni.“ Þar veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að gefa sig fram eða ekki og hvort lögreglan sé komin á slóð hennar.„Svo