Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ástarsvikarar féfletta Íslendinga á netinu: Töpuðu 70 milljónum í fyrra

Tuttugu ástarsvikamál bárust lögreglu í fyrra. Ástarsvik eru fjársvik á netinu sem fara eingöngu fram á stefnumótasíðum og samfélagsmiðlum. Svikarar setja sig í samband við grunlaust fólk og segjast í leit að ást en féflettir það svo. Í fyrra höfðu þeir um 70 milljónir af fólki hér á landi með ástarsvikum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn fjármunabrotadeildar segir líklegt að brot sem þessi geta færst í aukana og hvetur fólk til að vera á varðbergi. MARKHÓPURINN EKKI EINSLEITUR „Ástarsvik falla undir þessi hefðbundnu netsvik. Og það sem kannski skilur þau frá öðrum netsvikum er að þau fara eingöngu fram á samfélagsmiðlum og stefnumótasíðum. Og nálgunin er kannski að einhverju leyti öðruvísi, þar sem þessi svik taka töluvert meiri tíma en önnur svik,“ segir Stefán Örn Arnarson, aðstoðaryfirlögr
Ástarsvikarar féfletta Íslendinga á netinu: Töpuðu 70 milljónum í fyrra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta