Tólf starfsmönnum var sagt upp störfum hjá Sjúkratryggingum Íslands í dag.Í tilkynningu frá stofnuninni segir að uppsagnirnar séu til að auka skilvirkni og efla lykilþætti í starfseminni.Fjárhagur stofnunarinnar hefur verið styrktur á undanförnum árum en verkefnin hafa vaxið og erfitt að mæta vextinum innan núverandi fjárhagsramma, segir í tilkynningunni.Stjórn Sjúkratrygginga hefur einnig samþykkt nýtt skipurit sem felur í sér fækkun skipulagseininga og að dregið verði úr yfirbyggingu með fækkun stjórnenda. SKORUÐU LÆGST STÓRRA STOFNANNA Í KÖNNUN SAMEYKIS Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, segir í samtali við fréttastofu að uppsagnirnar dreifist nokkuð jafnt yfir svið stofnunarinnar.„Það hvernig þetta er gert endurspeglar áherslur stofnunarinnar og hvernig við viljum þróa