Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu

Veðurstofan gaf út gula viðvörun á höfuðborgarsvæðinu rétt fyrir klukkan tvö sem verður í gildi til klukkan sjö í kvöld. Reikna má með talsverðri eða mikilli snjókomu sem getur valdið umferðartruflunum.Fyrr í dag sagði Veðurstofan að búast mætti við talsverðri snjókomu og lélegu skyggni víða á Vesturlandi í dag og á Vestfjörðum í kvöld. Vegagerðin varaði við því að það gæti orðið blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu eftir hádegi þó að óvissa væri um hvar nákvæmlega snjóar mest.
Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta