Snjókoma gæti sett strik í reikninginn í samgöngum sums staðar á vestanverðu landinu í dag.Veðurstofan sagði í morgun að búast mætti við talsverðri snjókomu og lélegu skyggni víða á Vesturlandi í dag og á Vestfjörðum í kvöld. Samkvæmt yfirliti á vef Vegagerðarinnar gæti orðið blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu eftir hádegi þó að óvissa sé um hvar nákvæmlega snjóar mest.Daníel Þorláksson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni, ræddi veður og færð í hádegisfréttum. Hann sagði að líkur væru á að færð spillist á Vesturlandi.Daníel að víða gæti snjóað á vestanverðu landinu en mjög mismikið. Þar sem mest snjóar gæti það haft áhrif á samgöngur.„Þar getur orðið mjög blint og hríðaraðstæður þar. Því er spáð í nýjustu spám yst á Reykjanesi; í Sandgerði og Keflavík og einnig í Borgarfirði. Svo ætt