Þýsk kona á sextugsaldri segist hafa leiðst út í að flytja tuttugu kíló af sterkum fíkniefnum til landsins með Norrænu vegna fjárhagsvandræða í tengslum við handtöku sonar hennar í Frakklandi. Hún hafi átt að fá tvö til þrjú þúsund evrur fyrir ómakið, sem jafngildir um 290 til 340 þúsund krónum. Hún á nú yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi.