Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þegar hún hló: Ástarsagan besti þáttur glæpasögunnar

Þegar hún hló er önnur spennubók Katrínar Júlíusdóttur stjórnmálamanns þar sem hún tekur upp þráðinn frá bókinni Sykur sem hlaut glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn.Umdeild fjölmiðlakona finnst myrt úti á Granda eftir að hafa hlaupið í Reykjavíkurmaraþoni. „Mér finnst alltaf gaman að lesa um skúrka sem eru drepnir. Mér finnst það spennandi og skemmtilegt,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi Kiljunnar á RÚV.Aðalpersóna sögunnar er hin unga lögreglukona Sigurdís sem rannsakar málið. Það er hið dularfyllsta og virðist hafa verið þaulskipulagt. „Ég verð að segja að morðgátan fannst mér ekki það besta í bókinni. Mér fannst lausnin kannski ekki alveg nógu sannfærandi,“ segir Kolbrún.„En það sem hreif mig og kom mér á óvart, og ég hefði aldrei búist við því að ég myndi segja að væri besti þát
Þegar hún hló: Ástarsagan besti þáttur glæpasögunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta