Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump fór með staðreyndarvillur og stóð í stappi við Demókrata

Stefnuræða Donalds Trump forseta Bandaríkjanna á þinginu í nótt snerist lítið um stefnumál en þeim mun meira um hversu margt gott hefði gerst á fyrsta ári seinni embættistíðar hans. Hann lenti í orðaskiptum þegar talið barst að innflytjendamálum.Stefnuræða Donalds Trump forseta Bandaríkjanna í nótt var uppfull af staðreyndarvillum um efnahagsmál, landamæri og kosningar. Stemningin varð á tímabili spennuþrungin, einkum þegar rætt var um innflytjendamál.Fjölmiðlar bæði vestan hafs og austan hafa rýnt í ræðuna og greint þar fjölmargar rangar eða villandi staðhæfingar. Hér að ofan má sjá hluta þeirra. * Hann talaði meðal annars um metverðbólgu þegar hann tók við. Það er ekki rétt, því hún hafði þá minnkað töluvert frá því þegar hún var hæst á kjörtímabilinu – 9,1% í júní 2022. Þar vógu þungt
Trump fór með staðreyndarvillur og stóð í stappi við Demókrata

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta