Ilie Bolojan tekur ríkisreksturinn í Rúmeníu föstum tökum.EPA / CLEMENS BILANIlie Bolojan forsætisráðherra Rúmeníu tilkynnti í dag að 10% allra opinberra starfsmanna yrði sagt upp störfum fyrir lok árs. Þetta er hluti af hagræðingaraðgerðum stjórnvalda. Fjárlagahalli er hvergi meiri í Evrópusambandinu en einmitt í Rúmeníu.Bolojan tók við embætti síðasta sumar og hefur ráðist í ýmiss konar aðgerðir, meðal annars hækkað skatta, að því er AFP segir frá.Uppsagnirnar munu taka til um 13 þúsund manns, allt frá efstu lögum embættismannakerfisins niður í lögreglu og heilbrigðisstarfsfólk.Bolojan hefur sagst vilja snúa landinu frá neyslu og hallarekstri yfir í fjárfestingu, framleiðni, útflutning og ábyrgan ríkisrekstur.