Keath Ósk er að norðan, af filippseyskum ættum og gefur út tónlist undir nafninu Yaelokre. Nafnið hljómar ekki kunnuglega í eyrum margra en þó er um að ræða einn vinsælasta íslenska tónlistarmanninn á Spotify með þrjár milljónir mánaðarlegra hlustenda og stóran alþjóðlegan fylgjendahóp sem mætir á tónleika.