Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þremur karlmönnum sem eru grunaðir um að hafa kveikt í bíl í ágúst 2023. Bíllinn var í eigu lögreglukonu og grunaði hana strax að íkveikjan tengdist störfum hennar.Þetta er í annað skipti sem héraðssaksóknari gefur út ákæru á hendur mönnunum þremur vegna sama brots. Fyrri ákæru var vísað frá dómi eftir að dómari komst að þeirri niðurstöðu að héraðssaksóknara hefði skort vald til að ákæra mennina fyrir eignaspjöll.Tveir ákærðu búa hér á landi en einn í Svíþjóð. Einn þeirra átti, samkvæmt ákæru, að fá 100 þúsund krónur fyrir íkveikjuna.Rannsókn á íkveikjunni sneri lengst af um brot gegn valdstjórninni vegna þess að kveikt var í bíl lögreglukonu, auk þess sem meint eignaspjöll voru rannsökuð. Í lokin var þó bara ákært fyrir eignaspjöll.Verjendur