Ræða Donald Trumps Bandaríkjaforseta hófst á yfirferð hans um stöðu efnahagsmála í Bandaríkjunum og hann sagði viðsnúning hafa orðið í efnahagsmálum síðan ríkisstjórn hans tók við. Bensínverð hefði lækkað, verð á eggjum sömuleiðis og verðbólga væri loksins á niðurleið eftir skelfilega hagstjórn síðustu ríkisstjórnar.Bandaríkjaforseti sagði óheppilegt að Hæstiréttur Bandaríkjanna hefði dæmt tolla hans ólöglega nýverið. Hann bætti þó við að þjóðirnar sem hefðu samþykkt tollana vilji standa við samninginn, þar sem nýr samningur gæti verið enn verri fyrir þjóðirnar.Trump krafðist þess að demókratar myndu samþykkja ný kosningalög, en þau gera m.a. ráð fyrir því að allir kjósendur þurfi að sýna skilríki og sanna ríkisborgararétt sinn til að geta kosið.Trump fullyrti að Íranar væru að þróa kjarno