Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tilbúinn til umræðu um kjarnorkuvopn

Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra Danmerkur.EPA / Emil Nicolai HelmsTroels Lund Poulsen, varnamálaráðherra Danmerkur, segist vera tilbúinn til að ræða um kjarnorkuvopn og geymslu á þeim í Danmörku. Þetta sagði hann í viðtali við Politiken í gær, aðspurður um álit sitt á kaupum og geymslu á kjarnorkuvopnum.Varnarmálaráðherrann sagði að uppbygging af þessu tagi þyrfti að vera í nánu samtali við Atlantshafsbandalagið og evrópska bandamenn. Það væri ekki þar með sagt að hann væri á þessari skoðun, en hann væri tilbúinn að taka umræðuna. Bann hefur gilt um geymslu kjarnorkuvopna á danskri grundu síðastliðin sjötíu ár.
Tilbúinn til umræðu um kjarnorkuvopn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta