Fimmtán ríki í Bandaríkjunum undir stjórn demókrata ætla að stefna ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta vegna takmarkana á bólusetningum barna sem stjórnvöld ríkjanna segja að gangi þvert á niðurstöður vísindarannsókna.Fyrr á þessu ári var tilkynnt um breytingar á bólusetningum barna þegar heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, Robert F. Kennedy yngri, greindi frá því að ráðuneytið mæli ekki lengur með því að öll börn fari í bólusetningar við ýmsum sjúkdómum svo sem COVID-19, inflúensu, rótaveiru og fleiri sjúkdómum.Þá eru sjö bólusetningar eingöngu ráðlagðar þeim börnum sem eru talin þurfa þær sérstaklega. Þessi ákvörðun hefur mætt mikilli andstöðu og gagnrýni, meðal lækna og heilbrigðisstarfsfólks.„Heilbrigðisráðherrann og Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna eru að virða að vettugi áratu