Í það minnsta 30 hafa látið lífið og nær 40 er saknað eftir að úrhellisrigning olli flóðum og aurskriðum í Minas Gerais, fylki í suðausturhluta Brasilíu, í gærkvöld. Heimili og byggingar hrundu og slökkviliðsmenn og borgarar leita þeirra sem saknað er í rústunum. Mörgum hefur þegar verið bjargað.Flest dauðsföll hafa verið tilkynnt í borginni Juiz de Fora, en þar fórust 18 að sögn yfirvalda. Stjórnvöld í Brasilíu hafa lýst yfir neyðarástandi í borginni. BÖRN MEÐAL ÞEIRRA SEM LÉTUST Luiz Inácio Lula da Silva, forseti Brasilíu, sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldna fórnarlambanna og þeirra sem misstu heimili sín.Um 440 manns hafa misst heimili sín í Juiz de Fora. Þar hefur sveitarfélagið útvegað neyðarskýli og óskað eftir gjöfum á vatni, mat, fatnaði og hreinlætisvörum.Margarida