Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Friður ekki í sjónmáli en stríðsvél Rússa veikist

Friður milli Rússlands og Úkraínu er ekki í sjónmáli að sögn Jóns Ólafssonar, prófessors við Háskóla Íslands og sérfræðings í málefnum Rússlands. „Svo virðist alltaf vera að stærstu málin séu alltaf jafn óleyst og áður,“ segir hann.Þó að samningaviðræður séu í gangi og oft berist fregnir um að þær gangi vel og að þeim miði áfram virðist stærstu málin alltaf jafn óleyst og áður. „Það varðar auðvitað landakröfur Rússa sem þeir eru ekkert tilbúnir að slá neitt af,“ segir Jón. EKKERT NÝTT VERIÐ SAGT „Síðan eru það öryggistryggingarnar sem Úkraínumenn leggja náttúrulega höfuðáherslu á og eru algjörlega lykillinn að því að það sé hægt að ganga að einhverjum kröfum Rússa, það er að segja að Úkraínumenn sjái fram á einhvers konar öryggi á því landsvæði sem þeir munu hafa eftir samninga. Þannig
Friður ekki í sjónmáli en stríðsvél Rússa veikist

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta