Bandaríska sjónvarpskonan Savannah Guthrie segir að móðir hennar, sem hvarf af heimili sínu í janúar, sé mögulega látin. Yfirvöld telja að henni hafi verið rænt. Málið hefur vakið mikla athygli vestanhafs.Ekkert hefur spurst til Nancy Guthrie síðan 29. janúar og bandaríska alríkislögreglan hefur birt myndir úr eftirlitsmyndavélum við heimili hennar, þar sem grímuklæddur maður sést á ferli. Ekki hafa verið borin kennsl á manninn. Umfangsmikil leit hefur ekki borið árangur.Savannah Guthrie óskaði eftir aðstoð almennings í dag og hét milljón Bandaríkjadölum í skiptum fyrir upplýsingar sem leiða til þess að móðir hennar finnist.„Hún gæti þegar verið farin,“ sagði Guthrie. „Einhver þarna úti veit eitthvað sem gæti leitt til þess að hún komi heim.“Bandarísk yfirvöld hafa þegar heitið hundrað þús