Tveir af hverjum þremur dönskum foreldrum styðja börn sín fjárhagslega, jafnvel þó þau séu flutt að heiman. Vasapeningar, símareikningar og matvara er meðal þess sem foreldrarnir borga.Þetta kemur fram í könnun sem YouGov gerði fyrir Nordea-bankann. Samkvæmt henni veita 57 prósent foreldra börnum sínum á aldrinum átján til tuttugu og níu ára fjárhagslega aðstoð, jafnvel þó að þau séu flutt að heiman.„Ég heimsæki móður mína, fæ að borða og þvæ þvottinn minn,“ segir Lukas Christian Backhausen, nemi í málvísindum við Kaupmannahafnarháskóla.Louise Sandberg Madsen segir móður sína hjálpa sér við að borga símareikninginn og við ferðalög.46 prósent foreldra ungs fólks á aldrinum 27 til 29 ára segjast styðja börn sín fjárhagslega, hvort sem þau eru flutt að heiman eða ekki.Ida Moesby, hagfræðingur