Það kveður við nýjan tón í nýjustu skáldsögu Lilju Sigurðardóttur, Alfa. Hún er vön að skrifa glæpasögur en í þetta sinn sviðsetur hún söguna í framtíðinni. Bókin var tilnefnd til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna, Blóðdropans.„Ég er ekkert sérlegur aðdáandi framtíðarsagna. Þær þurfa að vera verulega góðar til að hrífa mig,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi Kiljunnar á RÚV. „Þessi gerist 2052 að mestu leyti og það er gervigreind sem stjórnar samfélaginu. Hún er eins og ströng en hlýleg barnfóstra, hún vill þér vel. Hún myndi til dæmis setja sykurskatt því það væri okkur öllum fyrir bestu.“Söguhetjurnar eru Sabína og Mekkín sem eiga soninn Júlíus sem er orðinn sextán ára og vígist þar með inn í heim fullorðinna. Þá fær hann örflögu í handlegginn og fær um leið að vita hvað honum er æt