Einn hefur leitað á eitrunarmiðstöð eftir notkun á svokölluðum peptíðum og tollurinn hefur stöðvað stórar sendingar af efninu hingað til lands. Íslenskir unglingar hafa sprautað sig með efninu til að líta betur út.Peptíð eru keðjur af amínósýrum. Efnið gengur kaupum og sölum, aðallega á samfélagsmiðlum, í útlöndum og hér heima. Nokkrar tegundir af peptíðum eru til sölu sem seljendur segja að hafi ólíka verkun; ein tegund á að vinna gegn öldrun, önnur er sögð laga húðvandamál og þriðja á að minnka matarlyst svo dæmi séu tekin. Peptíðin eru seld í vökvaformi, kosta tugi þúsunda og þeim þarf að sprauta undir húð.Einn hefur leitað á eitrunarmiðstöð eftir að hafa sprautað sig með ólöglegu peptíði. Efnið gengur kaupum og sölum á samfélagsmiðlum og markaðssetning snýr oft að unglingum sem hafa sp