Uppbygging á Akureyri hefur verið langt undir áætlaðri þörf síðustu ár, miðað við útreikninga Húsnæðis-,mannvirkja og skipulagsstofnunar (HMS). Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segir þurfa að rýna betur í tölurnar og mögulega endurmeta húsnæðisáætlun.„Þetta kemur mér aðeins á óvart. En ég held að okkar áætlanir séu þannig að við ættum að geta haldið í við íbúafjölgunina, allavegana ég vonast til þess. Við verðum að gera það. Þannig við verðum bara að spýta í lófana og endurskoða okkar áætlanir í samræmi við þetta“, sagði Ásthildur að loknum fundi um húsnæðismál á Akureyri í dag.Í máli bæjarstjórans kom fram að í þeirra áætlunum væri gert ráð fyrir að uppbygging á þessu ári yrði umfram það sem nauðsynlega þyrfti vegna fólksfjölgunar. Þau stefndu að úthlutun lóða fyrir allt að