Gló styrktarfélag segir í tilkynningu nauðsynlegt að fella niður Ævintýrabúðir og Vinahópa Reykjadals í sumar, þar sem fjármögnun hefur ekki fengist. Ekki hafi fengist svör frá ráðuneytunum um að halda verkefnunum áfram og því ekki forsendur til að halda þjónustunni áfram að svo stöddu, segir í tilkynningunni.„Við erum búin að vera að bíða og bíða, það er langt síðan við heyrðum í þeim og létum vita að við þyrftum að fá svör, upp á að fá starfsfólk,“ segir Jórunn Edda Óskarsdóttir, formaður stjórnar Glóar. „Það virðist vera að við séum bara búin að missa húsnæðið, eins og fyrir Ævintýrabúðirnar, við erum bara orðin of sein.“ ÖNNUR STARFSEMI ÓBREYTT Í REYKJADAL Í SUMAR Gló styrktarfélag rekur meðal annars sumarbúðir í Reykjadal fyrir börn og ungmenni með fatlanir. Ævintýrabúðir eru fyrir