Velferðarsvið Kópavogsbæjar hefur beðið fjölskyldu drengs sem vistaður var í Bakkakoti afsökunar. Beðist er afsökunar á að ekki hafi verið brugðist við með viðeigandi hætti á sínum tíma og að dvöl drengsins hafi ekki verið stöðvuð án tafar þegar upplýsingar lágu fyrir um skelfilegan aðbúnað og ofbeldi í Bakkakoti.Velferðarsvið Kópavogs er fyrsta opinbera stofnunin sem biðst afsökunar vegna málsins svo vitað sé.Sigrún Þórarinsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Kópavogsbæjar, segir að þegar umfjöllun í seinni þætti Kveiks var birt hafi komið skýrt fram að drengurinn var vistaður í Bakkakoti á vegum Kópavogsbæjar. Gögn sem var fjallað um í þættinum hafi bent til að upplýsingar hafi legið fyrir um slæman aðbúnað í Bakkakoti. Þrátt fyrir það hafi ekki verið brugðist við.„Þá er ekkert annað hægt