Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ísland veitir 800 milljónir til styrktar orkuinnviðum í Úkraínu

800 milljónir af samþykktum fjárstuðningi til Úkraínu fara til orkuinnviðauppbyggingar í landinu. Þetta tilkynnti Kristrún Frostadóttir í viðtali við Björn Malmquist í dag. „Þetta skiptir gríðarlega miklu máli fyrir Úkraínumenn,“ segir Kristrún. „Það hefur verið mjög erfitt í vetur hjá Úkraínumönnum vegna þess að það er gagngert búið að ráðast á orkuver þeirra.“Kristrún er ásamt fjölda evrópskra leiðtoga í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, til að minnast þess að fjögur ár eru liðin síðan allsherjarinnrás Rússa hófst.Fjarvera Bandaríkjamanna í Kyiv vakti athygli. „Og það er miður, vil ég segja, en Evrópa áttar sig alveg á því að hún þarf að taka sig á, hún þarf að bera þessar byrðar þyngra,“ segir Kristrún.
Ísland veitir 800 milljónir til styrktar orkuinnviðum í Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta