Hertex, nytjamarkaður- og verslun Hjálpræðishersins á Íslandi, hefur óskað eftir aðstoð við að meta verðgildi nokkurra muna sem þangað bárust í vikunni. Sömuleiðis er óskað eftir tilboðum frá áhugasömum kaupendum.Þetta kemur fram á Facebook-síðu Hertex Vínlandsleiðar. STÓR STYTTA AF MAÓ ZEDONG MEÐ RAUÐAN KLÚT Sem stendur nemur hæsta boð í alla gripina 25 þúsund krónum, en meðal munanna sem versluninni voru gefnir er stytta af kínverska byltingarleiðtoganum Maó Zedong, stofnanda Alþýðulýðveldisins Kína. Þar er einnig að finna kínverskan gjafakassa, postulínssett, koparlistaverk og útsaumaðar skreytingar.Að sögn Lárusar Óskars Sigmundssonar, flokksforingja hjá Hjálpræðishernum í Reykjavík, er lítið vitað um uppruna hlutanna og raunverulegt verðmæti þeirra.Hann segir upplýsingar standa á e